13.12.2007 | 14:36
Jólin jólin jólin koma...
Núna 13. desember er ég búin að kaupa allar jólagjafir. Þetta hefur nú aldrei gerst áður. Ég þessi sleði er nú yfirleitt hlaupandi um á aðfangadag. En nú er bara allt tilbúið. Ég á reyndar eftir að skreyta og skrúbba. En kort og gjafir eru tilbúnar og bíða bara eftir að komast í hendur á eigendum sínum. Þetta er afrek.
Jólasveinninn kemur núna og það er heilmikið mál. Afkvæmið er nú eitthvað farið að efast. En áfram trúir hún þó. Fékk reyndar grátkast í fyrrakvöld útaf því að ég ætlaði að láta hana sofa eina og svo kæmi bara ókunnugur karl inn um gluggann. Í gærkveldi var það svo þannig að hún grét og grét og átti hræðilega bágt. Það snérist um það að þegar við myndum flytja í hús á tveimur hæðum þyrfti hún að vera í kjallaranum. Hún grét líka smá yfir því að Siggi ræfillinn þarf að vera niðri í kjallara. Svo gat hún grátið yfir því að hún þyrfti að flytja að heiman þegar hún yrði fullorðin. En þegar ég var búin að lofa því að flytja ekki í hús á tveimur hæðum og að hún mætti búa heima hjá mér þar til hún yrði gömul kona, sofnaði hún. Það er erfitt að bíða eftir jólunum þegar maður er bara 7 ára. Auglýsingarnar byrja í október og svo glymur í eyrunum á manni að jólin séu á næsta leiti.
En það lýtur út fyrir að við mæðgur verðum tvær á aðfangadag. Það verður nú bara að hafa það. Við höfum þó hundinn og köttinn. Við ætlum að borða humar og svo ætlum við að hafa mikið af ís. En þetta skýrist á næstu dögum. Í næstu viku eru svo litlu jólin í skólanum og líka foreldrakaffi. Þannig að nóg er svo sem að gera fram að jólum.
Athugasemdir
SigrúnSveitó, 13.12.2007 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.